Hjálp

Hér finnur þú svör við algengum spurningum um Timr, hvort sem þú ert starfsmaður sem notar Timr-appið eða stjórnandi sem notar app.timr.is. Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband og við aðstoðum þig.

1. Hafðu samband

Sendu okkur tölvupóst á hjalp@timr.is. Við svörum yfirleitt innan eins virks dags.

Snúist spurningin um þínar eigin vaktir eða vinnutíma skaltu fyrst hafa samband við vinnuveitanda þinn. Hann skipuleggur vaktirnar og heldur utan um tímaskráninguna, og við getum ekki breytt þeim fyrir hans hönd.

2. Fyrstu skrefin í appinu

Timr-appið er fyrir starfsfólk fyrirtækja sem nota Timr. Svona byrjar þú:

  • Vinnuveitandi þinn skráir þig í Timr og sendir þér boð í tölvupósti.
  • Sæktu Timr í App Store eða Google Play.
  • Skráðu þig inn með netfangi og lykilorði, með Apple eða með Google.

Þegar þú hefur skráð þig inn sérðu vaktirnar þínar um leið og vinnuveitandi þinn birtir þær. Drög að vaktaplani sjást ekki í appinu.

3. Stimplun og staðsetning

Timr les staðsetningu tækisins aðeins á því augnabliki sem þú stimplar þig inn eða út — aldrei í bakgrunni og aldrei þegar appið er lokað.

  • Innstimplun: ef vinnustaðurinn þinn notar staðsetningarstaðfestingu þarftu að vera á staðnum þegar þú stimplar þig inn, og appið þarf þá aðgang að staðsetningu tækisins.
  • Útstimplun fer alltaf í gegn, líka utan vinnustaðarins. Stjórnandi fær þá ábendingu um það og þú getur bætt við skýringu.

Svona veitir þú appinu aðgang að staðsetningu: á iPhone opnar þú Settings › Timr › Location og velur „While Using the App“. Á Android opnar þú Settings › Apps › Timr › Permissions › Location og leyfir aðgang á meðan appið er í notkun.

4. Tilkynningar

Timr sendir þér tilkynningar þegar vöktunum þínum er breytt, ásamt áminningum, til dæmis ef þú hefur gleymt að stimpla þig út.

Þú velur hvaða tilkynningar þú færð í appinu undir Prófíll › Tilkynningar. Til að slökkva alveg á þeim ferðu í tilkynningastillingar tækisins.

5. Tungumál

Appið fylgir tungumáli aðgangsins þíns, sem er sjálfgefið íslenska. Þú getur skipt yfir í ensku í appinu undir Prófíll › Tungumál.

6. Eyða aðgangi

Þú getur eytt aðgangi þínum hvenær sem er. Notandaaðganginum og innskráningarupplýsingum þínum er þá eytt varanlega, þar á meðal tengingum við Apple og Google. Ekki er hægt að afturkalla eyðinguna.

  • Í appinu: opnaðu Prófíll, ýttu á Eyða aðgangi og staðfestu. Aðganginum er eytt samstundis.
  • Án appsins: sendu tölvupóst á hjalp@timr.is úr netfanginu sem aðgangurinn er skráður á og biddu um eyðingu. Við afgreiðum beiðnina innan 30 daga.

Vaktir og stimplanir eru vinnutímaskráningar vinnuveitanda þíns. Hann er ábyrgðaraðili þeirra og ber lagaskyldu til að varðveita þær, til dæmis bókhaldsgögn í sjö ár samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald. Þær geta því verið varðveittar áfram eftir að aðganginum er eytt, en eru þá ekki lengur tengdar honum. Sért þú eini eigandi fyrirtækis í Timr er fyrirtækinu eytt með aðganginum og áskrift þess sagt upp; appið sýnir þér hvaða fyrirtæki eiga í hlut áður en þú staðfestir. Nánar í persónuverndarstefnunni.

Sjá einnig persónuverndarstefnu og skilmála Timr.