Breytingaskrá

Hér sést hvað hefur bæst við og breyst í Timr. Aðeins það sem notendur sjá er skráð — við sleppum tæknilegum breytingum að baki tjöldunum.

Greiðslur í gegnum Straum

Kortagreiðslur fara nú í gegnum Straum.

  • BetrumbættKortið þitt er nú vistað og gjaldfært í gegnum Straum, íslenska greiðslumiðlun.

Fleiri stjórnendur og lögbundnar síður

Fyrirtæki eru sjaldan með aðeins einn stjórnanda. Nú má bjóða fleirum inn — og skilmálar og persónuverndarstefna eru loksins komin á vefinn.

  • NýttBjóddu öðrum stjórnanda inn í fyrirtækið og stýrðu aðgangi teymisins í stillingum.
  • NýttPersónuverndarstefna og skilmálar eru komnir á vefinn, á íslensku og ensku.
  • NýttEigandi getur skráð hvaða kjarasamningur gildir fyrir fyrirtækið.
  • BetrumbættVerðskráin fer nú eftir fjölda starfsmanna og áskriftin segir skýrt til ef valið pláss rúmar ekki alla.
  • BetrumbættÚtflutningur á tímaskráningu sýnir hvernig hver dagur flokkast, í þeim einingum sem launakerfið notar.
  • LagaðÁskriftin læsist ekki og minnir ekki á greiðslu meðan kortagreiðslur eru ekki virkar.

Mörg fyrirtæki og skýrari tímaskráning

Sami aðgangur getur nú haldið utan um fleiri en eitt fyrirtæki, og tímaskráningin sýnir heilan mánuð í einu.

  • NýttStofnaðu annað fyrirtæki og skiptu á milli þeirra beint úr fyrirtækjavalinu.
  • BetrumbættÞegar boðið er starfsmanni sem er þegar með Timr-aðgang sést það strax og hann bætist við fyrirtækið.
  • BetrumbættTímaskráningin birtir heilan mánuð í einu og býður flýtival á algeng dagsetningarbil.
  • LagaðÁskriftin uppfærist sjálf eftir greiðslu — ekki lengur þörf á að endurhlaða síðuna.

Ný greiðslusíða

Greiðsluferlið færðist yfir á nýja greiðslusíðu.

  • BetrumbættNý greiðslusíða með öruggari og hraðari staðfestingu.
  • LagaðUpplýsingar um fyrirtækið vistast rétt úr fyrirtækjaforminu.

Áskriftir, orlof og starfsstöðvar

Stór uppfærsla: áskriftarsvæði, orlofsstjórnun og starfsstöðvar með opnunartíma.

  • NýttÁskriftarsvæði þar sem sjá má stöðu áskriftar og greiðslusögu.
  • NýttOrlofsstjórnun: orlofsréttur, orlofsbeiðnir og samþykki stjórnanda.
  • NýttStarfsstöðvar með opnunartíma og staðsetningu, valdar beint á vaktir.
  • NýttHlaða má upp merki fyrirtækisins.
  • BetrumbættNýtt og einfaldara upphafsferli fyrir ný fyrirtæki.